<$BlogRSDURL$>

Tuesday, October 12, 2004

Einhildur!

Einhildi hef ég ekki þekkt lengi en það sem ég þekki af henni er baaara gott! Hún er kannski soldið spes með áfengi ;) EN með og án þess er hún bara fyndnasta manneskja sem ég þekki næstum því! Hún er svo mikill sprellari og kát alltaf að það er bara vangefið. Hún er líka algjör fatagúru þannig að þó svo að hún sé ekki sú fyrsta í að gera sig til í bransanum er hún samt algjört æði.

Thursday, April 22, 2004

Halldóra

Hún er sniðugt fólk sem ég þekkti ekki baun fyrr en að ég kynntist henni í MH, reyndar vissi ég ekki einu sinni að hún væri til(en það skiptir ekki öllu máli..). Hún er mjög skemmtileg og kemur mér oft til að hlæja og ég held að ég hafi aldrei hitt á hana í vondu skapi. Anywhoo..fínn gaur og gaman að snalla við barnið!

Snæsí, A.K.A Peekapoo:/

er heví fínn gaur sem ég kynntist í gegnum Halldóru. Hún er mjög skondin ungpía þrátt fyrir að hafa ótrúlega hæfileika í að hræða mig:/ Hún les eins og að hún fái heilt hús auk fimm milljóna í reiðufé fyrir að klára hverja bók. Barnið er stubbur eins og ég og þrátt fyrir að hún sé frekar lélegur bloggari, þ.e bloggar svo sjaldan að það er bara veisla þegar hún loks gerir það, fær hún stig fyrir viðleitni;) Snæsí..gott að tala við þig! Haltu áfram á sömu braut!!

Sunday, January 25, 2004

Aldís

Hún er félagi sem ég kynntist bara í fyrra í gegnum Hildi og co. í MR. Ég get ekki annað sagt en að ég sé mjög fegin að hafa kynnst þessari snót þar sem að hún er í alla staði yndisleg. Hún er góð við mann og nei veistu, segjum frekar hún er góð við alla. Og svo er hún sprellari og alveg dásamlega skemmtileg! Aldís, þú ert gott.

Tuesday, January 20, 2004

Jósi eða José

Hann er mjög skemmtilegur strákur sem að er hægt að tala um allt við. Húmorinn hans er alveg í hæsta gæðaflokki nema stundum þegar hann fer aðeins út fyrir mörkin og mér verður óglatt. Eða svona næstum því allavega! Hann er stoltur MR-ingur sem að hikar ekki við að koma með sóðaleg skot á MH. *bitur* En ég mun einn daginn jafna mig á því sem að hann hefur látið út úr sér á stundum sem þeim þegar maður er að tala við hann síðla nætur á msn og bullarinn er kominn á fullt.


Árni (rauð)Björn

Töffari sem að var með mér í bekk í Hlíðaskóla, hann er stór og rauður tennisbrjálæðingur sem getur unnið alla nema mig í tennis. Hann er eins konar rauður húlk...hann getur haldið á fólki með vinstri handlegg og spígsporað um ganga MH með stelpu á öxlinni, þeirri vinstri. Annars þá er hann bara skemmtilegur og fyndinn dúdd sem að ég hvatti til að blogga;) Takk ég og áfram Árni.
Hildur Sóley

Hún var með mér í Hlíðaskóla og við erum alltaf jolly..hún er svakalega skemmtileg og allavega ekki neitt mjög feimin sko. Við erum báðar svona stubbar svo að við skiljum hvora aðra..Hildur er fyndin og sniðug og maður verður oft mjög glaður af því að vera í kringum hana. Nema þegar hún er reið..og að reyna að sofa í rútu..hohoho!

Ómar

Sérstakur strákur sem að var í hinum bekknum í Hlíðaskóla en er nú í MR ásamt nokkrum öðrum sem að ég þekki. Hann er skemmtilegur og kemur sífellt á óvart. Hann kemur nefnilega fyrir sem frekar þögull og feiminn drengur en hann stundar aðallega miklar tjáningar sem geta hrætt en einnig frætt! *rím* Hann er allavega nett skemmtilegur nema þegar hann tapar sér í pirrumvöluleiknum..
DÍA

Díu er hrikalega skemmtilegt að ræða við og við erum algjörir kúlistar..enda báðar með svona fornaldar msn í tölvunum okkar. Hún veit mjög mikið um tónlist og fyrir það lít ég upp til hennar..hehe. Hún er með mér í MH svo að við getum alltaf komið við á miðju alheimsins á leiðinni heim úr skólanum. Allavegana þá er Día góður gaur!
Brynjar

Hann er kúl..*töffari* enda býr hann á viðurkenndum töffarastað, Blönduhlíð! Við erum nágrannar og bæði í MH, það er gaman að spjalla við Brynjar um hin ýmsu málefni og svo höfum við oft reddað hvoru öðru í neyð. T.d þegar hann er að deyja úr þrá til að horfa á DVD sama hvað klukkan er, þá redda ég honum alltaf!
Siddi


Sidda hef ég þekkt síðan ég var tíu ára..hann er ýkt góður og skemmtilegur náungi en samt er hann sko enginn engill skal ég segja ykkur!! Það er alltaf gott að tala við hann og ég held að hann sé svei mér þá alltaf reiðubúinn til að hlusta á mann röfla um hversdagsleg vandamál. Góður gaur Siddi!

Monday, January 19, 2004

MAGGA

Möggu hef ég þekkt jafnlengi og Furu..við vorum alltaf þrjár saman í bekk í Hlíðaskóla en fórum nú allar í mismunandi menntaskóla. Magga er alveg ýkt skemmtileg og fyndin stelpa sem að á til að segja alveg ótrúlegustu hluti. Ég hún og Soffía höfum gert margt í gegnum tíðina allar þrjár saman en eitt er mér mjög minnisstætt. Við ákváðum að taka upp mjög vafasama frásögn á diktafóninn minn og spila það fyrir konu í gegnum símann. Þar sem að þetta var símaat gættum við okkar að sjálfsögðu vel, gerðum *31* (það virkaði sem númeraleynd í gamla daga!) og allt þannig. Svo fannst okkur þetta svo hrikalega fyndið að við ákváðum að reyna aftur en þá sagði kerlan bara: Er þetta í Blönduhlíð 22? sem að var alveg rétt..svo að við gjörsamlega flippuðum af hræðslu og hlupum allar þrjár heim til Soffíu.
Soffía

Við höfum verið vinkonur síðan í fimmta bekk en höfum því miður aðeins misst bandið núna síðan að við fórum í sitt hvoran menntaskólann og svoleiðis. En þó höldum við bandinu alltaf og munum örugglega í framtíðinni bralla jafnsniðuga hluti og Útvarp Valgerði. Soffía er fáránlega fyndin og skemmtileg stelpa sem að ég gerði margt sniðugt og annað minna sniðugt með. LIFÐU HEIL HÓFÍ!
Kolli

Nett steiktur gaur sem ég hef þekkt alveg slatta lengi. Hann er mjög skemmtilegur og kitlar mig oftar en ekki í munnvikin. Dúddinn er í hljómsveitinni Rok og ber húðir þar og gengur það bara mjög vel hjá honum. Hann er mjög sérstakur en samt á góðan hátt..reyndar stundar hann það full frjálslega að sleikja hendurnar á fólki ef þær eru e-ð í námunda við andlitið á honum. Æj þetta kom örugglega ekki vel út..en jæja, allir þeir sem Kolla þekkja vita hvað ég á við:p
Sigrún Guðmundsdóttir

Hún var með mér í Hlíðaskóla og er nú aftur með mér í MH. Sigrún er alveg hreint yndislegasta og skemmtilegasta manneskja sem að ég veit um. Það er alltaf hægt að tala við hana og oftar en ekki framkallar hún bros framan í mér. Held að hún hafi örugglega mjööög sjaldan verið vond við einhvern á æviskeiðinu..fyrir utan kannski systur sínar..en ég held að litlar systur séu bara til þess að vera vond við!! Sigrún þú ert svo mikið yndi að það hálfa væri hellingur!

Elsa..

..var í hinum bekknum í Hlíðaskóla og henni kynntist ég í rauninni ekkert fyrr en bara í tíunda bekk og líka þegar við byrjuðum í MH. Hún er alltaf voðalega fín í tauinu og er nett skemmtilegur sprellari sem sprellar stundum svo mikið að sprellinu virðist aldrei ætla að linna.
Fura

Hún er nú bara ein af mínum elstu vinkonum. Þetta er í fyrsta sinn alla mína skólagöngu sem að ég er ekki með henni í bekk! Já, það er satt..yndið mitt hún Fura ákvað að fara í MR með hinu MR fólkinu. Hún er með stærsta hjarta sem að um getur og er alltaf góð við allt og alla. Held að hún eigi pottþétt eftir að fá svona besta stóra systir verðlaun einhvern tímann af þvi að hún er alltaf svooo góð við systur sínar! Fura..þú ert yndi!!!!!
Áslaug

Áslaugu hef ég þekkt síðan í 8.bekk, hún er ýkt skemmtileg og fyndin stelpa sem að ég er guðs lifandi fegin að hafa kynnst. Við höfum gert mikið af hlutum í gegnum tíðina eins og að fara út í hálfgerðan lögguleik og að horfa á myndbandið við Nínu aftur og aftur og aftur og aftur. Svo má nú ekki gleyma því þegar við vorum að læra heima í 10.bekk og uppgötvuðum töfra Michael Jackon. Ahh..góðir tímar góðir tímar!
Katla

Hún er tvíburasystir Hildar Ás sem að ég skrifaði um hér á undan. Katla er alltaf hress og í góðu skapi, nema mjööög sjaldan. Við skemmtum okkur alltaf mjög vel saman og getum talað endalaust mikið þegar við erum í stuuuði. Það er alltaf mikil gleði sem að liggur í loftinu þegar Katla er á staðnum og það er nú bara alveg hreint með eindæmum æðislegt!
Hildur Ás

Hildur er ákaflega fróð og skemmtileg stelpa. Hún hefur kennt mér margt í gegnum tíðina en reyndar höfum við ekki verið vinkonur neitt ofboðslega lengi. Hún kom í bekkinn okkar í níunda bekk en við vinguðumst nú bara ekkert að ég held fyrr en í þeim tíunda. Aglavegana þá er hún ýkt ógó skemmtileg stelpa sem að ég gleðst mjög yfir að hafa kynnst. Þess má einnig til gamans geta að ég kynntist Mörtu (vörtu...HAHAHAH) í gegnum þær Kötlu!
Sölvi

Hann er hress náungi sem skilur ekki lífið. Gaurnum er tónlist í blóð borin og hann hefur bæði tónlistarhæfileika sem og mikið vit á tónlist bara yfir höfuð. Þó beinist áhugi hans aðallega að rokki sem er nú líka bara gott og blessað. Hann er skemmtilegur og á nú líka alveg sínar mjúku hliðar þrátt fyrir að vera öfgaröff gaur á yfirborðinu ;)

Sigrún Hlín

Sigrún er mjög sniðug stelpa sem að býr í útnára hlíðahverfisins, Suðurhlíðunum. Hún er algjör bók..semsagt átakanlega gáfuð sem að ég get spurt að öllu sem að mig þyrstir í að fá svar við. Við höfum verið vinkonur síðan í fimmta bekk og aldrei hefur hún brugðist mér þegar ég leita til hennar í vanda. Sigrún er svakalega skemmtileg og hress stelpa sem er alveg á kafi í old rockinu. GÓÓÓÐ SIGRÚN GÓÓÓÓÐ!



This page is powered by Blogger. Isn't yours?